Ég mæli með KVIKU
Þegar Kramhúsið hóf starfsemi sína 1983 var leitað til Tómasar Jónssonar og hann beðinn um að hanna fyrstu auglýsingu hússins og lógó. Auglýsingarnar vöktu strax athygli fyrir grafíska hönnun og léttan húmor sem samræmdist vel þeirri hugmynd sem lögð var fyrir.
Þau 19 ár sem Kramhúsið hefur starfað hefur Tómas séð um allar auglýsingar hússins, bæklinga og heimasíðu. Þær skipta hundruðum auglýsingarnar sem Tómas hefur teiknað og eru þær stór þáttur í þeirri athygli og velgengni sem Kramhúsið hefur notið. Tómas útfærir hugmyndir á sjálfstæðan og skapandi hátt. Það má treysta því að Tómas skili verkefnum í anda hússins og á réttum tíma og það skiptir máli.
Auglýsingar Tómasar eru kraftmiklar, persónulegar og sýnilegar – þær skila árangri.
– Hafdís Árnadóttir – eigandi Kramhússins.
- - - - - -

Humall ehf. leitar til KVIKU
Kvika hefur unnið fyrir okkur að hönnun nýrrar ímyndar fyrirtækisins. Meðal verkefna voru nýtt logo, vörumerkingar og bæklingar. Við höfum mætt fagmensku, frumkvæði, skilningi og brennandi áhuga. Útkoman vísar á bjarta framtíð.
– Jón Gunnar Gylfason – framkvæmdastjóri Humals ehf.
- - - - - -

Byggðastofnun
Tómas Jónsson er hugmyndaríkur og vinnur eftir háum listrænum og faglegum staðli að mínu mati. Ég get mælt með þjónustu hans á þessu sviði og tel að þau verk sem hann hefur annast fyrir Byggðastofnun séu til vitnis um færni hans.
– Sigurður Guðmundsson – (fv) forstöðumaður þróunarsviðs Byggðastofnunar.
- - - - - -

Þjóðleikhúsið
Tómas Jónsson sá um útlitshönnun á kynningarefni Þjóðleikhússins og uppsetningu á leikskrám í samvinnu við leikmyndateiknara hússins. Tómas er afar góður í samvinnu, alltaf tilbúinn að hlusta á hugmyndir annar, vinna úr þeim og bæta þær. Hann hefur næmt auga fyrir góðri uppsetningu og frumkvæði í starfi. Í haust var mikill annatími hjá Þjóðleikhúsinu og reyni oft á skjót viðbrögð og eftirfylgju. Tómas brást vel við þessu álagi og var gott á hann að treysta.
– Sigríður Margrét Guðmundsdóttir – (fv) leikhúsritari Þjóðleikhússins.
- - - - - -

Umboðsmaður barna
Í tilefni af 10 ára afmæli Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna var ákveðið að gefa út upplýsingamöppu sem tileinkuð yrði þessum sáttmála. Til þessa verks fékk ég Tómas Jónsson. Þetta verkefni leysti hann ákaflega vel af hendi, bæði hugvitsamlega og með alúð. Mér líkaði vel að starfa með Tómasi sem er þægilegur í viðmóti.
– Þórhildur Líndal – Umboðsmaður barna.
- - - - - -