|
KVIKA
er nýstárleg auglýsinga- og hönnunarstofa með
fjölbreytta þjónustu í gerð kynningarefnis
og auglýsinga.
Nýbreyttnin felst í því að Kvika
er verktaki í hverskyns grafískri hönnun og auglýsingagerð.
Að baki starfseminnar er mikil og víðtæk reynsla
í undirbúningi, hönnun, umsjón og framleiðslu
auglýsinga og upplýsingaefnis.
Tómas Jónsson, grafískur hönnuður, er eigandi
og framkvæmdastjóri stofunnar. Tómas hefur víða
komið við og lengst af starfað sjálfstætt undir
nafninu Teiknað hjá Tómasi. [Sjá
ferilsskrá>]
Með stofnun Kviku hefur Tómas skipt um gír og
stofnað til samstarfs við ýmsa aðila sem vinna við
markaðsstarf og auglýsingagerð hugmyndasmiði,
textagerðarmenn, þýðendur, ljósmyndara, teiknara
og myndskreytingarmenn, grafíska hönnuði, umbrotsgúrúa,
vefsmiði, tækni- og listamenn í margmiðlun, reynslubolta
í almannatengslum, fyndna fýra í gerð útvarps-
og sjónvarpsauglýsinga auk samstarfs við skiltagerðir,
prentsmiðjur, dreifingaraðila, birtingahús og fjölmiðla.
Þetta er um það bil það sem Kvika hefur
upp á að bjóða auk þjónustulundar.
Mottóið er að haga sér skynsamlega í ölduróti
markaðs- og sölumála, finna hnitmiðaðar lausnir,
vinna hratt og örugglega, vanda til verksins en vera samkeppnishæfir
í verði svo að allir geti vel við unað.
- - - -
Líf
mitt er ekki fullkomið frekar en annara, en það eru tvær
hliðar á öllu jákvæð og neikvæð.
Þegar ég ákveð í morgunsárið
að dvelja í jákvæðu hugarfari og forðast
neikvæða hugsun verður dagurinn mun árangursríkari
og ég hamingjusamari að kveldi dags. [Höfundur ókunnur]
|
|