Menntun:
Stúdentspróf frá Menntaskólanum á Akureyri.
Myndlistarnám við Art&Design Center, De Montford University, Leicester, Englandi
– Grafísk hönnun og ljósmyndun – BA próf 1976, MA próf 1977.

Starfsferill:
Sjónvarpið RÚV, auglýsingastofur, útgáfufyrirtæki, sjálfstætt starfandi hönnuður lengst af.
Stofnaði Auglýsingastofuna Teiknað hjá Tómasi 1981.
Stofnaði Matstofuna Á næstu grösum, Laugavegi, 1979 ásamt eiginkonu og vinum og rak í tvö ár.
Stofnaði Spilaútgáfuna Norðurljós sem gaf út tvö frumhönnuð spil 1981-1982.
Stofnaði Útgáfufélagið UNG sem gaf út tímaritið UNG 1985-1986.
Stofnaði Kolaportið ásamt fleirum 1989.
Stofnaði Internethúsið Qlan, vefhönnun og hýsing, 1995.
Stofnar KVIKU – verktaki í grafískri hönnun og auglýsingagerð, 2002.

Tengd störf:
Prófdómari um árabil við útskrift nemanda í Grafískri hönnun frá Myndlista- og handíðaskóla Íslands (Listaháskóla Íslands). Hefur verið fulltrúi FÍT (Félag íslenskra teiknara) í dómnefnd ÍMARK (Bestu auglýsingar ársins).

Persónuhagir:
Maki: Þórunn Elísabet Sveinsdóttir - TÓTA, myndlistarkona og búningahönnuður. Saman eiga þau fjögur börn - Jón, Rut, Ari og Anna María. Heimili þeirra er í Þingholtunum í 101 Reykjavík.
Áhugamál: Fjölskyldan, starfið, myndlist og aðrar listgreinar, hestar, skokk, útivist, stangveiði, skíði og aðrar íþróttir.

Til baka