29. apríl 2016

Kvika gefur út sex mánaða víxla

Kvika banki hf. hefur gefið út sex mánaða víxla að fjárhæð 2.000 milljónir króna. Um er að ræða útgáfu í víxlaflokknum KVB 16 0923 og er heildarheimild flokksins 2.000 m.kr. Fjármálaeftirlitið staðfesti lýsingu vegna umsóknar um töku víxlanna til viðskipta í gær, þann 28. apríl, og sótt hefur verið um töku víxlanna til viðskipta í Kauphöll Íslands. 

Útprentuð eintök lýsingarinnar má nálgast í 12 mánuði frá staðfestingu hennar í höfuðstöðvum Kviku, Borgartúni 25, 105 Reykjavík. 

Rafræn eintök má nálgast á vefsíðu Kviku https://www.kvika.is/um-kviku/fjarfestar.

Til baka