02. ágúst 2017

Kvika kaupir allt hlutafé í Öldu

Kvika hefur undirritað samning um kaup á öllu hlutafé í Öldu sjóðum hf. Kaupin eru gerð með fyrirvara um áreiðanleikakönnun og samþykki eftirlitsstofnana.

Alda rekur 11  verðbréfasjóði og aðra sjóði um sameiginlega fjárfestingu auk þess að vera söluaðili sjóða í umsjón Aberdeen Asset Management og Hermes Investment Management. Heildareignir í stýringu hjá Öldu nema 45 milljörðum króna og hjá félaginu starfa sex starfsmenn með mikla reynslu á sviði eignastýringar. Félagið hefur á undanförnum árum náð mjög góðum árangri í sjóðastýringu og umsvif þess aukist verulega.

Kvika er eini sérhæfði fjárfestingabanki landsins með sterka stöðu á sviði markaðsviðskipta og öfluga eignastýringu, fyrirtækjaráðgjöf, sérhæfða lánastarfsemi og einkabankaþjónustu. Kvika festi á dögunum kaup á öllu hlutafé í Virðingu hf. með það að markmiði að sameina félögin. Kaupin á Virðingu hf. eru háð samþykki eftirlitsstofnana og eru nú til umfjöllunar hjá Fjármálaeftirlitinu og Samkeppniseftirlitinu.

Með kaupunum á Virðingu og Öldu verður Kvika einn umsvifamesti aðili í eignastýringu á Íslandi með um 280 milljarða króna í stýringu. 

Til baka