13. október 2016

Kvika með leiðandi stöðu á skuldabréfamarkaði og First North Iceland

Kvika hefur haldið leiðandi stöðu á skuldabréfamarkaði frá upphafi árs. Af 2.292 milljarða króna heildarviðskiptum á skuldabréfamarkaði í Kauphöll Íslands á fyrstu níu mánuðum ársins 2016 nam heildarvelta Kviku tæpum 475 milljarði króna, eða um 20,7% af heildarviðskiptum tímabilsins. 

Á hlutabréfamarkaði var Kvika með þriðju mestu veltuna á fyrstu níu mánðum ársins en hún nam tæplega 152 milljörðum eða 17,8% af tæplega 850 milljarða heildarviðskiptum. Mest voru viðskipti með hlutabréf í Icelandair Group, Högum og Reitum fasteignafélagi.  

Af viðskiptum í First North Iceland er Kvika einnig með leiðandi stöðu en af 1.637 milljóna heildarviðskiptum nam hlutdeild Kviku tæplega 722 milljónum, eða 44,1%.

Til baka