05. apríl 2017

Kvika velunnari heimsforeldra

_DSC6424Hildur Þórisdóttir, marksaðs- og mannauðsstjóri Kviku og Bergsteinn Jónsson, framkvæmdarstjóri UNICEF á Íslandi, undirrituðu samninginn

UNICEF á Íslandi og Kvika endurnýjuðu nýverið styrktarsamning. Kvika er aðalsamstarfsaðili UNICEF á Íslandi á sviði bankaþjónustu, auk þess að vera sérstakur velunnari heimsforeldra. Á Íslandi eru vel yfir 25.000 heimsforeldrar og eru þeir hvergi hlutfallslega fleiri en hér á landi.

Kvika niðurgreiðir bankakostnað heimsforeldra og gerir UNICEF á Íslandi þannig kleift að nýta söfnunarfé sitt enn betur í þágu réttinda og velferðar barna. Kvika veitir UNICEF bestu mögulegu kjör á bankaþjónustu og skuldbindur sig til að styðja við fjáröflun UNICEF á Íslandi, bæði með beinum framlögum og öðrum samstarfsleiðum.

Til baka