Kvika banki hf. hefur gefið út
sex mánaða víxla að fjárhæð 2.000 milljónir króna. Um er að ræða útgáfu í
víxlaflokknum KVB 16 0923 og er heildarheimild flokksins 2.000 m.kr.
Fjármálaeftirlitið staðfesti lýsingu vegna umsóknar um töku víxlanna til
viðskipta í gær, þann 28. apríl, og sótt hefur verið um töku víxlanna til
viðskipta í Kauphöll Íslands.
Útprentuð eintök lýsingarinnar má nálgast í 12
mánuði frá staðfestingu hennar í höfuðstöðvum Kviku, Borgartúni 25, 105 Reykjavík.
Rafræn eintök má nálgast á vefsíðu Kviku https://www.kvika.is/um-kviku/fjarfestar.