28. maí 2016

Móttökuritari hjá Kviku

Kvika leitar eftir öflugum og skipulögðum einstaklingi til starfa í móttöku bankans. Um er að ræða fjölbreytt og lifandi starf þar sem viðkomandi mun sinna móttöku viðskiptavina, umsjón með símsvörun, fundaumsjón og aðstoð við forstjóra bankans.

Helstu verkefni:

  • Móttaka viðskiptavina og símsvörun
  • Fundaumsjón
  • Aðstoð við forstjóra
  • Almenn skrifstofustörf, s.s. skjölun og bréfaskriftir
  • Ferðabókanir og innkaup
  • Ýmis tilfallandi verkefni og stuðningur við önnur svið bankans

Hæfni og þekking:

  • Mjög gott vald á íslensku og ensku bæði í rituðu og töluðu máli
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Lipurð í mannlegum samskiptum
  • Fagleg og fáguð framkoma
  • Framúrskarandi skipulagshæfni 
  • Þjónustulund og sveigjanleiki

Umsóknarfrestur er til og með 5. júní 2016.

Umsækjendur eru vinsamlega beðnir um að sækja um starfið á heimasíðu Kviku (www.kvika.is/starfsumsokn) eða senda umsóknir á netfangið starf@kvika.is. Umsókn um starfið skal fylgja starfsferilsskrá og kynningarbréf. Nánari upplýsingar veitir Hildur Þórisdóttir markaðs- og mannauðsstjóri Kviku, hildur.thorisdottir@kvika.is

Atvinnuauglýsing

Til baka