
Akta sjóðir hf. er rekstrarfélag verðbréfasjóða sem rekið er í samstarfi
við Kviku banka hf. Akta annast rekstur og stýringu verðbréfa-, fjárfestinga-
og fagfjárfestasjóða skv. lögum nr. 128/2011 fyrir hönd viðskiptavina sinna.
Félagið er sjálfstætt starfandi fjármálafyrirtæki sem á rætur að rekja til
ársins 2013 og byggir á grunni sjóðastýringar innan forvera Kviku.
Akta rekur fjóra fagfjárfestasjóði og einn verðbréfasjóð. Akta leggur
áherslu á virka sjóðastýringu þar sem sjóðstjórar eru meðfjárfestar í þeim
sjóðum sem þeir stýra.
Örn Þorsteinsson er framkvæmdastjóri Akta, en hann hefur yfir 18 ára
reynslu af eigin fjárfestingum. Stjórn Akta skipa Arna Grímsdóttir, Agla
Elísabet Hendriksdóttir og Anna Rut Ágústsdóttir.