21. mars 2017

Kvika lýkur víxlaútboði

Kvika banki hf. hefur lokið útboði á sex mánaða víxlum í nýjum flokki, KVB 17 0921. Í heildina bárust tilboð upp á 2.670 milljónir kr. og var tilboðum tekið fyrir 2.000 milljónir kr. Víxlarnir voru seldir á 5,45% flötum vöxtum og áætlað er að taka þá til viðskipta á Nasdaq Ísland í næstu viku.

Sigurður Atli Jónsson, forstjóri Kviku:
Fjármögnun Kviku með víxlaútgáfum hefur gengið vel og við erum ánægð með viðtökur fjárfesta. Áhuginn og sífellt betri kjör eru staðfesting á trausti til Kviku.“

Til baka