24. maí 2017

Kvika stækkar útgáfu víkjandi skuldabréfs í flokknum KVB 15 01

Kvika hefur stækkað útgáfu á víkjandi skuldabréfi í flokknum KVB 15 01 um 450 milljónir króna að nafnvirði og er stærð flokksins 1.000 milljónir eftir stækkun.

Skuldabréfin bera 5,50% árlega verðtryggða vexti til og með 25. ágúst 2020 en 7,50% árlega verðtryggða vexti næstu fimm ár þar á eftir eða til gjalddaga 25. ágúst 2025. Skuldabréfin eru innkallanleg af útgefanda á hverjum vaxtagjalddaga frá og með 25. ágúst 2020. Lokagjalddagi er 25. ágúst 2025.

Heildarheimild til útgáfu í KVB 15 01 var hækkuð upp í  1.000 milljónir að nafnvirði á fundi eigenda skuldabréfanna þann 19. maí síðastliðinn og hefur heimild til útgáfu nú verið nýtt að fullu.

Stefnt er að því að framangreind stækkun á skuldabréfaflokknum KVB 15 01 verði tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland hf. fyrir 24. júní 2017. 

Til baka