Marinó Örn Tryggvason hefur hafið störf sem aðstoðarforstjóri
Kviku. Marinó starfaði áður í eignastýringu Arion banka og forvera bankans frá
árinu 2002. Síðast starfaði Marinó sem aðstoðarframkvæmdastjóri eignastýringar
Arion frá árinu 2014 og fyrir þann tíma var hann forstöðumaður eignastýringar
fagfjárfesta frá 2007.
Marinó mun að auki sinna hlutverki
framkvæmdastjóra eignastýringar Kviku þar til fyrirhugaður samruni Kviku og
Virðingar hefur gengið í gegn. Að því gefnu að áætlanir um samruna gangi eftir mun
Hannes Frímann Hrólfsson taka við starfi framkvæmdastjóra eignastýringar í
kjölfar samruna.
Hannes hefur starfað á fjármálamarkaði í hátt í
tvo áratugi. Hann hefur verið forstjóri Virðingar frá 2014 en áður starfaði
hann hjá Auði Capital frá 2012, lengst af sem forstjóri. Fyrir þann tíma
starfaði Hannes hjá Arion banka og forvera bankans og var framkvæmdastjóri og
meðstofnandi Tinda verðbréfa.
Kvika
undirritaði nýverið samninga um kaup á öllu hlutafé í Virðingu hf. og Öldu
sjóðum hf. og eru kaupin nú til umfjöllunar hjá eftirlitsstofnunum. Með
kaupunum á Virðingu og Öldu verður Kvika einn umsvifamesti aðili í
eignastýringu á Íslandi með um 280 milljarða króna í stýringu.