Á stjórnarfundi þann 18. ágúst 2017, samþykkti stjórn
og forstjóri árshlutareikning samstæðu Kviku banka hf. fyrir tímabilið 1. janúar
2017 til 30. júní 2017.
Helstu atriði úr árshlutareikningi:
- Hagnaður fyrstu sex mánuði ársins 2017 nam 946 milljónum króna.
- Hreinar rekstrartekjur námu 2.573 milljónum króna á fyrri helmingi 2017 samanborið við 2.164 milljónir króna á fyrri helmingi 2016.
- Hreinar þóknanatekjur námu 1.296 milljónum króna á fyrri helmingi 2017 samanborið við 1.165 milljónir króna á fyrri helmingi 2016.
- Hreinar vaxtatekjur námu 807 milljónum króna á fyrri helmingi 2017 samanborið við 528 milljónir króna á fyrri helmingi 2016.
- Rekstrarkostnaður nam 1.609 milljónum króna á fyrri helmingi 2017 samanborið við 1.668 milljónir króna á fyrri helmingi 2016.
- Heildareignir 30. júní 2017 námu 90.986 milljónum króna samanborið við 59.563 milljónir króna í lok árs 2016.
- Eigið fé samstæðunnar 30. júní 2017 nam 8.208 milljónum króna.
- Arðsemi eiginfjár á ársgrundvelli m.v. afkomu fyrri helmings 2017 var 26,2%.
- Eiginfjárhlutfall 30. júní 2017 var 23,1%.
- Lausafjárþekja (LCR) 30. júní 2017 var 193%.
Ármann Þorvaldsson, forstjóri Kviku:
„Starfsemi Kviku á
fyrri hluta árs gekk mjög vel og afkoma bankans er vel umfram væntingar. Það er
veruleg aukning í bæði þóknana- og vaxtatekjum og á sama tíma tókst að halda
rekstrarkostnaði á áætlun. Góður árangur hefur náðst í uppbyggingu félagsins á
undanförnum misserum og eiga starfsmenn Kviku mikið hrós skilið fyrir vel unnin
störf og mikilvægt framlag til uppbyggingar bankans.
Við horfum fram á
spennandi tíma á næstunni. Kvika festi nýverið kaup á öllu hlutafé í Virðingu
og Öldu sjóðum. Kaupin eru nú til umfjöllunar hjá eftirlitsaðilum en gangi þau
eftir verður Kvika einn umsvifamesti aðilinn á eignastýringarmarkaði með um 280
milljarða í stýringu.“
Hagnaður Kviku á fyrri helmingi
2017 tæpur milljarður
Hagnaður Kviku fyrstu sex mánuði ársins 2017 nam 946
milljónum króna samanborið við 378 milljónir króna á fyrri helmingi 2016.
Mikill tekjuvöxtur var á fyrri helmingi árs 2017 samanborið við fyrri hluta árs
2016. Hreinar vaxtatekjur námu 807 milljónum króna á fyrri helmingi 2017 sem er
53% aukning frá fyrri helmingi 2016 og skýrist einna helst af hagstæðari fjármögnun
bankans.
Hreinar þóknanatekjur námu 1.296 milljónum króna á
fyrri helmingi árs 2017 og jukust um 11% frá fyrri helmingi 2016. Vöxtur var í
þóknanatekjum hjá nær öllum tekjusviðum bankans á milli ára. Rekstrarkostnaður
nam 1.609 milljónum króna á fyrri hluta árs 2017 og lækkaði um 3,6% samanborið
við fyrri hluta árs 2016. Rekstrarkostnaður er í takt við áætlanir bankans
þrátt fyrir aukin umsvif og tekjuaukningu.
Arðsemi eiginfjár á
fyrstu sex mánuðum ársins 2017 nam 26,2%.
Sterkur efnahagur
Í lok júní 2017 námu heildareignir samstæðu Kviku 90.986
milljónum króna samanborið við 59.563 milljónir króna í árslok 2016 og nemur
hækkunin 53% á tímabilinu. Útlán til viðskiptavina námu rúmum 25 milljörðum
króna í lok júní 2017. Almenn innlán og peningamarkaðsinnlán jukust verulega á
tímabilinu, um rúma 25 milljarða króna, eða 55%.
Lausafjárstaða bankans er sterk og nam lausafjárþekjan
(LCR) 193% í lok júní 2017 vel umfram kröfur um 100% lágmarksþekju. Handbært fé
í lok tímabilsins nam 28.213 milljónum króna.
Eigið fé í lok júní 2017 var 8.208 milljónir króna og
eiginfjárhlutfall 23,1% samanborið við 20,6% í árslok 2016. Eiginfjárstaða
bankans er sterk og eiginfjárhlutfall vel umfram kröfur eftirlitsaðila.
Stjórn Kviku hefur ákveðið að skoða kosti þess að skrá
bankann á First North markaðinn. First North er norrænn hliðarmarkaður fyrir
hlutabréfaviðskipti sem er sérsniðinn fyrir félög í vexti. First North nýtir
sömu innviði og dreifingarnet og Nasdaq Nordic, sem veitir viðskiptaaðilum,
skráðum félögum, fjárfestum og öðrum aðilum á markaðnum greiðan aðgang að um
80% af verðbréfamarkaði Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna. Ráðgert er
að ákvörðun um hvort af skráningu Kviku á First North verði, liggi fyrir í lok
október 2017.
Árshlutareikninginn í heild sinni má nálgast hér.