Kvika banki hf.
Á
stjórnarfundi þann 17. febrúar 2018 samþykkti stjórn og forstjóri ársreikning
samstæðu Kviku banka hf. fyrir tímabilið 1. janúar 2017 til 31. desember 2017.
Helstu
atriði úr ársreikningi:
- Hagnaður
Kviku árið 2017 nam 1.591 milljónum króna en afkoma grunnrekstrar, sem er
leiðrétt fyrir einskiptisliðum vegna samruna og skipulagsbreytinga, nam 1.919
m.kr.
- Arðsemi
eiginfjár af grunnrekstri árið 2017 var 24,9%.
- Hreinar
rekstrartekjur námu 5.009 milljónum króna árið 2017
- Rekstrarkostnaður
nam 3.670 milljónum króna árið 2017
- Heildareignir
31. desember 2017 námu 75.597 milljónum króna
- Eigið
fé samstæðunnar 31. desember 2017 nam 10.982 milljónum króna.
- Eiginfjárhlutfall
31. desember 2017 var 21,1%.
- Lausafjárþekja
(LCR) 31. desember 2017 var 215%.
- Starfsmenn
voru 107 í lok árs 2017
Hagnaður af reglulegri starfsemi
tæpir tveir milljarðar
Hagnaður
Kviku af grunnrekstri árið 2017 nam 1.919 milljónum króna samanborið við 1.955
milljónir króna árið 2016. Einskiptisliðir vegna samruna og skipulagsbreytinga
á árinu voru 328 milljónir króna og var hagnaður eftir einskiptiskostnaðarliði
1.591 milljónir króna.
Vöxtur var í hreinum vaxtatekjum og þóknanatekjum á árinu. Hreinar
vaxtatekjur námu 1.563 milljónum króna og jukust um 47% á milli ára og skýrist það
að miklu leyti af bættum fjármögnunarkjörum Kviku. Þóknanatekjur námu 3.033
milljónum króna á árinu 2017 og jukust um 5% á milli ára, en vöxtur var á nær
öllum tekjusviðum bankans á milli ára. Rekstrarkostnaður nam 3.670 milljónum
króna á árinu 2017 og jókst um 14% á milli ára, en 328 milljónir skýrast af
einskiptisliðum.
Arðsemi eiginfjár af grunnrekstri árið
2017 nam 24,9%.
Sterkur og gagnsær efnahagur
Í
lok árs 2017 námu heildareignir samstæðu Kviku 75,6 milljörðum króna samanborið
við 59,6 milljarða króna í árslok 2016 og jukust um 27% á tímabilinu. Handbært
fé nam tæpum 20,0 milljörðum króna og jókst um 8,0 milljarða á tímabilinu. Útlán
til viðskiptavina námu rúmum 25,3 milljörðum króna í lok árs 2017 og drógust
saman um tæp 3% á milli ára. Almenn innlán námu rúmum 41,7 milljörðum króna og
jukust um 9,3 milljarða króna á árinu.
Lausafjárstaða
bankans er góð og nam lausafjárþekjan (LCR) 215% í árslok, langt umfram kröfur
um 100% lágmarksþekju.
Eigið
fé í lok árs 2017 var 10.982 milljónir króna og eiginfjárhlutfall 21,1%
samanborið við 20,6% í árslok 2016. Eiginfjárstaða bankans er sterk og eiginfjárhlutfall
umfram kröfur eftirlitsaðila, en lágmarkskrafa um eiginfjárgrunn að viðbættum
eiginfjáraukum var 19,5% í árslok.
Ármann Þorvaldsson, forstjóri Kviku:
„Árið var viðburðaríkt í starfsemi
Kviku og ytri vöxtur setti mark sitt á síðari helming ársins. Bankinn styrkti
grunnstoðir sínar með kaupum á öllu hlutafé í Virðingu og Öldu sjóðum og er nú
einn umsvifamesti aðilinn á eignastýringarmarkaði með um 263 milljarða í
stýringu og tugi sjóða í rekstri. Í september tók bankinn einnig yfir
fyrirtækjaráðgjöf Beringer Finance á Íslandi og er nú með eina öflugustu fyrirtækjaráðgjöf
á Íslandi. Samþætting á starfsemi eininga sem þessara er flókið verkefni en
hefur gengið mjög vel þökk sé því frábæra fólki sem starfar hjá bankanum.
Þrátt fyrir að ytri vöxtur væri
fyrirferðarmikill gekk rekstur Kviku mjög vel á árinu 2017. Afkoma bankans var
góð, fjármögnun bankans styrktist og vel gekk að halda rekstrarkostnaði á
áætlun. Uppbygging félagsins hefur gengið vonum framar og var vöxtur bæði í
þóknana- og vaxtatekjum.Veruleg kostnaðarsamlegð hefur náðst fram í kjölfar
sameiningar við Virðingu og mun hún hafa jákvæð áhrif á rekstur bankans til framtíðar.
Horfur í rekstri Kviku eru
prýðilegar. Bankinn er leiðandi í fjárfestingabankaþjónustu á innlendum
markaði, reksturinn er sterkur og frekari sóknarfæri framundan. Unnið er að
skráningu hlutabréfa bankans á Nasdaq First North og er stefnt að því að ljúka henni
fyrir lok mars.“
Nánari upplýsingar veitir Ármann
Þorvaldsson, forstjóri Kviku í síma 540 3200.