23. janúar 2019

Kvika stækkar framtakssjóðinn FREYJU

Kvika hefur nú lokið annarri umferð söfnunar áskriftarloforða framtakssjóðsins FREYJU slhf. og er heildarstærð sjóðsins 8 milljarðar króna.  Hluthafar Freyju eru flestir af stærstu lífeyrissjóðum landsins og aðrir fagfjárfestar.

Freyja fjárfestir í íslenskum fyrirtækjum með sterka stöðu á markaði, gott sjóðstreymi og áhugaverð vaxtartækifæri. Fulltrúar sjóðsins vinna náið með stjórnendum og meðeigendum í að bæta rekstur og árangur félaganna sem fjárfest er í með það að markmiði að hámarka verðmæti til lengri tíma litið. Áhersla er lögð á að félögin sýni samfélagslega ábyrgð i daglegum rekstri, tileinki sér góða viðskipta- og stjórnarhætti, gæti að fjölbreytni í stjórnun og hugi að umhverfismálum.

Kvika er einn reynslumesti rekstraraðili framtakssjóða á Íslandi en auk Freyju rekur Kvika framtakssjóðina Auði I slf. og Eddu slhf.  Rekstur þessara sjóða hefur gengið vel og skilað fjárfestum góðri arðsemi. Auður I var stofnuð árið 2008 og fjárfesti sjóðurinn í átta félögum fyrir rúmlega 3 milljarða m.a. Íslenska gámafélaginu, Já og Ölgerðinni.  Edda er 5 milljarða sjóður sem var stofnaður árið 2013 og fjárfesti í fjórum félögum.  Sjóðurinn á eignarhluti í Íslandshótelum og Securitas eftir að hlutur í Domino´s var seldur á síðasta ári til Domino´s í Bretlandi en fjárfestingin skilaði hluthöfum Eddu yfir 50% árlegri ávöxtun. 

Hannes Frímann Hrólfsson, framkvæmdarstjóri Eignastýringar Kviku:

Freyja er þriðji og stærsti framtakssjóðurinn í rekstri Kviku sem byggir á árangri Auðar og Eddu en helstu hluthafar Freyju hafa jafnframt fjárfest í fyrri framtakssjóðum okkar. Framtakssjóðir Kviku eru áhrifafjárfestar sem taka virkan þátt í stefnumótun og rekstri fyrirtækjanna sem fjárfest er í í samstarfi við stjórnendur og meðeigendur. Undanfarin 10 ár höfum við fjármagnað vöxt og uppbyggingu margra af öflugustu fyrirtækjum landsins.  Hjá  okkur hefur byggst upp mikil reynsla af rekstri og framtaksfjárfestingum en frá upphafi höfum við lagt ríka áherslu á ábyrgar fjárfestingar.

Til baka