27. maí 2019

Afkomutilkynning fyrir fyrsta ársfjórðung 2019

Á stjórnarfundi þann 27. maí 2019 samþykkti stjórn og forstjóri árshlutareikning samstæðu Kviku banka hf. fyrir tímabilið 1. janúar 2019 til 31. mars 2019.

Góð afkoma á fyrsta fjórðungi

  • Hagnaður fyrir skatta nam 852 milljónum króna
  • Hagnaður eftir skatta nam 709 milljónum króna
  • Arðsemi eiginfjár var 22,4%
  • Hreinar rekstrartekjur námu 2.289 milljónum króna
  • Rekstrarkostnaður nam 1.301 milljónum króna
  • Heildareignir námu 115,1 milljörðum króna
  • Eigið fé samstæðunnar nam 13,2 milljörðum króna
  • Eiginfjárhlutfall í lok mars var 22,5%
  • Lausafjárþekja (LCR) var 175%
  • Heildareignir í stýringu námu 442 milljörðum króna
  • Starfsmenn í fullu starfi voru 133 í lok mars

Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og hluthafa verður haldinn í höfuðstöðvum Kviku, Borgartúni 25, þriðjudaginn 28. maí kl. 8:30.

Hækkun á afkomuspá fyrir árið

Afkomuspá bankans fyrir árið 2019 hefur verið uppfærð með hliðsjón af uppgjöri fyrsta ársfjórðungs og væntingum um rekstur bankans það sem eftir er af árinu. Samkvæmt upphaflegri afkomuspá fyrir árið 2019 var afkoma bankans fyrir skatta áætluð 1.990 m. kr. án áhrifa frá Gamma Capital Managament hf. Gamma kom inní samstæðu bankans 1. mars 2019.

Samkvæmt uppfærðri afkomuspá verður hagnaður ársins fyrir skatta um 2.700 m.kr.

Hreinar rekstrartekjur ársins 2019 eru áætlaðar um 8.000 m.kr., þar af er áætlað að 67% verði hreinar þóknanatekjur, 23% hreinar vaxtatekjur, 9% hreinar fjárfestingatekjur og 1% aðrar tekjur.

Afkoma bankans getur vikið töluvert frá áætlun, m.a. vegna markaðsaðstæðna.

Ármann Þorvaldsson forstjóri Kviku:

,,Fyrsti fjórðungur ársins í rekstri Kviku var umfram væntingar og við erum mjög ánægð með uppgjörið. Markaðsaðstæður voru hagfelldar á fjórðungnum sem endurspeglast meðal annars í aukinni veltu á verðbréfamörkuðum. Öll tekjusvið bankans gengu vel og þar af leiðandi var arðsemi bankans góð. Í lok síðasta árs var  gefin út afkomuspá fyrir árið og  samkvæmt henni var gert ráð fyrir að afkoma Kviku yrði í samræmi við arðsemismarkmið, sem er 15% arðsemi eigin fjár. Horfur á yfirstandandi ári eru góðar og því hefur verið ákveðið að hækka afkomuspána um rúmlega þriðjung. Hækkunin skýrist af því að rekstur bankans gengur betur en búist var við og afkoma Gamma er hluti af afkomu bankans frá 1. mars. 

Í mars voru hlutabréf bankans skráð á aðallista Nasdaq Iceland. Fjárfestar hafa sýnt hlutabréfum bankans áhuga sem sést í því að velta með bréfin hefur verið nokkuð mikil.

Á fjórðungnum tók bankinn sín fyrstu skref í fjártækni með því að bjóða uppá óbundna innlánsreikninga undir vörumerkinu Auður. Innlánsreikningarnir greiða hærri vexti en aðrir bjóða en það er hægt með því að nýta tækniframfarir til að lágmarka kostnað við þjónustuna. Viðtökur hafa verið framar vonum og unnið er að því að kortleggja hvaða frekari tækifæri ný tækni og breytt starfsumhverfi fela í sér.“

Til baka