02. september 2019

Gamma, Júpíter og eignastýringarstarfsemi Kviku sameinuð í einu félagi

Stjórn Kviku hefur ákveðið að sameina alla eigna- og sjóðastýringarstarfsemi samstæðunnar. Auk eignastýringar Kviku á bankinn rekstrarfélögin GAMMA Capital Management hf. og Júpíter rekstrarfélag hf. Með sameiningunni verður sameinað dótturfélag Kviku stærsta eigna- og sjóðastýringarfyrirtæki landsins.

GAMMA sameinast Júpíter auk þess sem öll eigna- og sjóðastýringarstarfsemi innan Kviku mun flytjast yfir í sameinað félag. Sameinað félag verður með um 45 starfsmenn og heildareignir í stýringu um 440 milljarðar. Breytingar þessar eru gerðar með fyrirvara um samþykki viðeigandi eftirlitsaðila.

Valdimar Ármann forstjóri GAMMA hefur óskað eftir því að láta af störfum en gegnir starfi sínu fram yfir sameiningu félaganna. Hannes Frímann Hrólfsson, sem gegnt hefur starfi framkvæmdastjóra eignastýringar Kviku verður framkvæmdastjóri sameinaðs félags og tekur strax við sem framkvæmdastjóri Júpíters. 

Hannes Frímann hefur víðtæka reynslu af fjármálamarkaði í yfir 20 ár. Hann tók við starfi framkvæmdastjóra eignastýringar Kviku árið 2017 í framhaldi af kaupum Kviku á Virðingu hf. en þar hafði hann starfað sem forstjóri. Virðing og Auður Capital sameinuðust árið 2014 og var Hannes Frímann forstjóri Auðar Capital áður. Hann var framkvæmdastjóri og einn stofnanda Tinda verðbréfa auk þess sem hann starfaði hjá Arion banka og Kaupþingi, m.a. sem aðstoðarframkvæmdastjóri fjárstýringar og markaðsviðskipta. Hannes Frímann er Cand.oecon í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands.

Ragnar Páll Dyer mun hefja störf í dag sem framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs Kviku, en hann hefur starfað hjá Júpíter frá 2010 og gegnt stöðu framkvæmdastjóra hjá félaginu síðan 2013. Ragnar hefur lokið stjórnendanámi frá Stanford háskóla, er með BSc. gráðu í rekstrarverkfræði frá Háskólanum í Reykjavík og hefur lokið prófi í verðbréfaviðskiptum.

Eigna- og sjóðastýringarstarfsemi Kviku hefur vaxið mikið á síðustu árum, bæði með ytri og innri vexti. Umhverfi fjármálafyrirtækja er að breytast og ég tel að mikilvægi eigna- og sjóðastýringarstarfsemi aukist enn frekar. Eigna- og sjóðastýring er ein af meginstoðunum í rekstri bankans og ég tel að þessar breytingar muni styrkja starfsemina til frekari vaxtar. Mig langar sérstaklega til þess að þakka Valdimar forstjóra GAMMA fyrir hans störf, en hann hefur leitt félagið farsællega í gegnum miklar breytingar. - segir Marinó Örn Tryggvason, forstjóri Kviku. 

Til baka