02. apríl 2020

Hvatningarsjóður kennaranema

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um styrki úr Hvatningarsjóði kennaranema.

Hvatningarsjóðurinn er samstarfsverkefni Kviku og mennta- og menningarmálaráðuneytisins sem hefur það að markmiði að hvetja öfluga einstaklinga til þess að velja nám í menntavísindum og efla vitund um mikilvægi kennaranáms. Við vonumst til þess að sjóðurinn geti lagt eitthvað af mörkum til að auka nýliðun og stemma stigu við vöntun í kennarastéttinni.

Umsóknarfrestur er til 4. maí 2020 og skulu umsóknir sendar á netfangið kennarar@kvika.is. Allar nánari upplýsingar um sjóðinn má finna á kvika.is/hvatningarsjoðir

Til baka