27. ágúst 2020

Fyrirmyndarfyrirtæki í góðum stjórnarháttum

Kvika banki hefur hlotið viðurkenningu sem fyrirmyndarfyrirtæki í góðum stjórnarháttum fyrir árið 2019.

Í verkefninu felst að öllum fyrirtækjum gefst tækifæri til að undirgangast formlegt mat á starfsháttum stjórnar og stjórnenda sinna. Viðurkenningin byggir á úttekt á góðum stjórnarháttum og tekur mið af leiðbeiningum gefnum út af Viðskiptaráði Íslands, Samtökum atvinnulífsins og Nasdaq Iceland. Tilgangur viðurkenningarinnar er að ýta undir umræður og aðgerðir sem efla góða stjórnarhætti.

Anna Sif Jónsdóttir, innri endurskoðandi Kviku banka tók við viðurkenningunni þann 21. ágúst síðastliðinn. Kvika banki fékk fyrst viðurkenningu fyrir góða stjórnarhætti árið 2018 en sú viðurkenning gildir í þrjú ár. Það eru Stjórnvísi, Viðskiptaráð Íslands, Samtök atvinnulífsins og Nasdaq Iceland sem veita viðurkenninguna.

 

Til baka