12. nóvember 2020

Kvika óskar styrkþegum til hamingju

Kvika-heilsida.jpg

Nýlega fór fram úthlutun styrkja úr Hvatningarsjóði Kviku fyrir skólaárið 2020-2021. Í ár voru það sjö iðnnemar og fimm kennaranemar sem hlutu styrki samtals að fjárhæð kr. 10 milljónir. 

Hvatningarsjóður Kviku hefur það hlutverk að hvetja og styrkja ungt fólk til iðn- og kennaranáms. Markmið sjóðsins er að efla umræðu og vitund um mikilvægi iðn- og kennaranáms og þýðingu starfa sem því tengjast fyrir íslenskt atvinnulíf. Skortur er á iðn- og kennaramenntuðu starfsfólki og er sá skortur víða orðinn hamlandi fyrir starfsemi fyrirtækja og skóla.

Gildi Kviku er langtímahugsun og stefna bankans er að hafa jákvæð langtímaáhrif á samfélagið. Að mati bankans verða samfélög sem drifin eru áfram af hugviti og nýsköpun leiðandi á komandi árum og menntun því einn af hornsteinum samfélagsins og mikilvægur hlekkur í því að stuðla að sjálfbærni. Árið 2018 setti bankinn á laggirnar Hvatningarsjóð fyrir iðnnema með það fyrir augum að styrkja ímynd iðnnáms og starfa sem því tengjast, sem og að efla áhuga og vitund um mikilvægi námsins. Hvatningarsjóður kennaranema fylgdi svo í kjölfarið árið 2019. Upphaflega átti hvor sjóður að starfa í þrjú ár en við höfum nú ákveðið að halda áfram að styðja við þessar mikilvægu menntagreinar og renna þessum tveimur sjóðum saman í einn sjóð. Fyrsta úthlutun úr sameiginlegum sjóði verður næsta sumar. Á þessum óvenjulegu tímum er sérstaklega mikilvægt að hlúa að grunnstoðunum og þar er fátt mikilvægara en menntun. Þá vil ég nota tækifærið og þakka Samtökum iðnaðarins, mennta- og menningarmálaráðuneytinu og úthlutunarnefndum sjóðanna fyrir framlag þeirra til verkefnisins og einkar ánægjulegt samstarf.“ - segir Marinó Örn Tryggvason, forstjóri Kviku

Eftirfarandi nemar hlutu styrk:

Iðnnemar

Vilborg Lilja Bjarnadóttir Klæðskurður og búningagerð við Bournemouth háskóla

Gerður Björg Harðardóttir,  B stig vélstjórnar við Verkmenntaskólann á Akureyri

Ásgrímur Þór Kjartansson, C stig vélstjórnar við Tækniskóla Íslands

Albert Ingi Lárusson, Pípulagningar við Tækniskóla Íslands

Sigþór Árni Heimisson, Húsasmíði við Verkmenntaskólann á Akureyri

Heba Lind Halldórsdóttir, Húsgagnasmíði og húsgagnabólstrun við Tækniskóla Íslands

Díana Rós Brynjudóttir, B stig skipstjórnar við Tækniskóla Íslands

Kennaranemar

Axel Guðmundur Arason, Grunnskólakennsla eldri barna við Háskóla Íslands

Ellen Alfa Högnadóttir, Grunnskólakennsla við Háskóla Íslands                  

Jóhanna María Bjarnadóttir, Grunnskólakennsla yngri barna við Háskóla Íslands

Hafdís Shizuka Iura, Grunnskólakennsla eldri barna við Háskóla Íslands

Gunnar Möller, Framhaldsskólakennsla við Háskóla Íslands

 

Nánari upplýsingar um Hvatningarsjóð Kviku má finna á kvika.is/hvatningarsjodir

Til baka