25. janúar 2021

Kaup Kviku á Netgíró frágengin

Kvika banki hf. hefur gengið frá kaupum á 80% hlut í Netgíró hf. af Alva Capital ehf., en greint var frá undirritun viljayfirlýsingar um kaupin í tilkynningu þann 16. júlí 2020. Bankinn átti fyrir um 20% hlut í Netgíró og verður nú eini eigandi félagsins.

Kaup á Netgíró eru í samræmi við stefnu bankans að nýta tæknilausnir til þess að nútímavæða fjármálaþjónustu. Netgíró hefur lagt áherslu á þróun á lánshæfismati ásamt því að bjóða raðgreiðslur með einföldum hætti. Áður hefur bankinn sett fjártækniþjónustuna Auði á laggirnar með góðum árangri.

Kvika hefur átt farsælt samstarf við Netgíró á undanförnum árum, meðal annars varðandi fjármögnun á kröfusafni félagsins. Kaupin gera bankanum kleift að efla enn frekar þetta samstarf sem leiðir til aukinnar skilvirkni og hagræðingar hjá báðum aðilum. Netgíró er nú á tæplega 3.000 sölustöðum á landinu og tæplega 50.000 einstaklingar eru í viðskiptum við fyrirtækið.

Bankinn mun birta afkomuspá fyrir árið 2021 þann 28. janúar næstkomandi. Í spánni er gert ráð fyrir að kaupin á Netgíró hafi jákvæð áhrif á afkomu ársins en stefnt er að því að þau áhrif aukist töluvert þegar horft er til næstu ára.

Marinó Örn Tryggvason, forstjóri Kviku:

Fjármálakerfi landsins er að breytast og samkeppni að aukast. Kvika ætlar að vera fjármálafyrirtæki sem nýtir nýjustu tæknilausnir til þess að þjónusta viðskiptavini. Með kaupum á Netgíró er bankinn vel í stakk búinn til að auka umsvif sín í fjármögnun á vörukaupum. Jafnframt eru mikil tækifæri fólgin í að nýta innviði Netgíró til þess að útvíkka þjónustu félagsins.“

Skorri Rafn Rafnsson, stjórnarformaður Alva Capital ehf.:

Þetta eru ánægjuleg tímamót fyrir Netgíró sem styrkist í sessi með þessum kaupum. Um leið eru kaup Kviku á Netgíró staðfesting á því góða starfi sem unnið hefur verið hjá fyrirtækinu frá stofnun af því afburða starfsfólki sem þar starfar. Ég óska Netgíró alls velfarnaðar á komandi árum.“

Til baka