05. júlí 2021

UNICEF á Íslandi og Kvika endurnýja samstarfssamning

f.v. Birna Þórarinsdóttir og Íris Arna Jóhannsdóttir.jpg

Nú í vikunni undirrituðu UNICEF á Íslandi og Kvika banki samstarfssamning til tveggja ára og er samstarfið við Kviku því orðið eitt farsælasta fyrirtækjasamstarf samtakanna hér á landi. Kvika hefur verið aðalsamstarfsaðili UNICEF á Íslandi á sviði bankaþjónustu frá árinu 2011 og er auk þess sérstakur velunnari Heimsforeldra.

 

Kvika niðurgreiðir bankakostnað Heimsforeldra og gerir UNICEF á Íslandi þannig kleift að nýta söfnunarfé sitt enn betur í þágu réttinda og velferðar barna um allan heim. Kvika veitir UNICEF bestu mögulegu kjör á bankaþjónustu og skuldbindur sig til að styðja við rekstur og fjáröflun UNICEF á Íslandi, bæði með beinum framlögum og öðrum samstarfsleiðum. Á Íslandi eru um 26.000 Heimsforeldrar og eru þeir hvergi hlutfallslega fleiri en hér á landi.

 

Á síðastliðnum árum hefur Kvika auk þess stutt við ýmis verkefni UNICEF á Íslandi og má þar nefna Dag rauða nefsins, neyðarsöfnun fyrir börn í Jemen og Stöðvum feluleikinn, átak UNICEF gegn ofbeldi gegn börnum á Íslandi.

 

Það voru Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi, og Íris Arna Jóhannsdóttir, forstöðumaður skipulagsþróunar samstæðu Kviku, sem undirrituðu samninginn sem gildir til næstu tveggja ára.

 

Við erum stolt að því að hafa verið styrktaraðili UNICEF á Íslandi síðustu 10 ár. UNICEF á Íslandi hefur gegnt leiðandi hlutverki í hjálparstarfi barna, bæði hérlendis og erlendis, og okkur þykir ánægjulegt að hafa geta lagt þeim málefnum lið. Við hlökkum til áframhaldandi samstarfs, segir Íris Arna Jóhannsdóttir, forstöðumaður skipulagsþróunar samstæðu hjá Kviku

f.v. Fríða Ásgeirsdóttir, Íris Arna Jóhannsdóttir, Birna Þórarinsdóttir, Stefán Örn Gíslason og Eyrún Inga Jóhannsdóttir.jpg

Til baka