24. ágúst 2021

Kvika banki fyrirmyndarfyrirtæki í góðum stjórnarháttum

Stjórnarhættir 2021.jpg

Síðastliðinn föstudag hlaut Kvika banki viðurkenningu fyrir góða stjórnarhætti fyrir árið 2020.

Í verkefninu felst að öllum fyrirtækjum gefst tækifæri til að undirgangast formlegt mat á starfsháttum stjórnar og stjórnenda sinna. Viðurkenningin byggir á úttekt á góðum stjórnarháttum og tekur mið af leiðbeiningum gefnum út af Stjórnvísi, Viðskiptaráði Íslands, Samtökum atvinnulífsins og Nasdaq Iceland. Tilgangur viðurkenningarinnar er að ýta undir umræður og aðgerðir sem efla góða stjórnarhætti. Alls hlutu 15 fyrirtæki viðkenningu að þessu sinni.

Marinó Örn Tryggvason forstjóri Kviku banka tók við viðurkenningunni fyrir hönd bankans.

Til baka