04. janúar 2024

Vísitölur Kviku í desember 2023

Gengi hlutabréfavísitölu Kviku, KVIKAEQI, hækkaði mest allra vísitalna Kviku í mánuðinum en vísitalan hækkaði um 11,2% á milli mánaða.

Þróun vísitalna Kviku frá áramótum

Gengi vísitalna í desember

Markaðsvísitala Kviku, KVIKATRI, hækkaði um 6,7% milli mánaða. Meðallíftími vísitölunnar lækkaði um 0,1 í mánuðinum. Markaðsvirði vísitölunnar hækkaði um 330 ma.kr. á milli mánaða og stóð í lok mánaðarins í 4.241 ma.kr.

Verðtryggða vísitalan, KVIKAi, lækkaði um 0,2% í mánuðinum og hækkaði markaðsvirði hennar um 3 ma.kr. Gengi óverðtryggðu vísitölunnar, KVIKAxi, hækkaði um 2,3% milli mánaða og markaðsvirði vísitölunnar hækkaði um 19 ma.kr. Í heildina hækkaði Ríkisskuldabréfavísitalan, KVIKAGOVI, um 1,1%. Verðtryggingahlutfall vísitölunnar lækkaði um 0,9% og meðaltími vísitölunnar lækkaði um 0,1 í mánuðinum.

Skuldabréfavísitalan, KVIKAXGOVI, hækkaði um 1,1% í desember og hækkaði markaðsvirði vísitölunnar um 14 ma.kr. Vísitala opinberra aðila, KVIKAp, hækkaði um 0,7% á sama tíma og sértryggða vísitalan, KVIKAcb hækkaði um 0,7% milli mánaða.

Hlutabréfavísitala Kviku, KVIKAEQI, hækkaði um 11,2% í mánuðinum. Markaðsvirði vísitölunnar hækkaði um 294 ma.kr. í desember og stendur nú í 2.504 ma.kr. Hlutabréfavísitalan KVIKAeqcap hækkaði um 11,1% í desember.

Vísitala fyrirtækjaskuldabréfa, KVIKAc, hækkaði um 1,0% á milli mánaða. Markaðsvirði vísitölunnar hækkaði um 1 ma.kr. á milli mánaða.

Þróun félaga innan Hlutabréfavísitölu Kviku í desember 2023

Frekari upplýsingar um vísitölur Kviku má finna hér. Vísitölurnar eru sendar út í lok hvers viðskiptadags til áskrifenda, hægt er að skrá sig með því að senda póst á visitolur@kvika.is

pdfAðferðafræði vísitalna Kviku

pdfAlgengar spurningar

Til baka