Ásgeir Baldurs hefur verið ráðinn forstöðumaður sérhæfðra fjárfestinga innan eignastýringarsviðs Kviku. Ásgeir hefur fjölþætta reynslu úr íslensku atvinulífi og af stjórnun fyrirtækja. Ásgeir gekk til liðs við fyrirtækjaráðgjöf Kviku í mars 2015. Áður starfaði Ásgeir sem stjórnandi hjá VÍS á árunum 2000 til 2007 og var forstjóri félagsins á árunum 2006 til 2007. Ásgeir starfaði einnig um sex ára skeið sem ráðgjafi og meðeigandi hjá ráðgjafarfyrirtækinu Expectus áður en hann gekk til liðs við Kviku. Ásgeir hefur setið í stjórnum fjölmargra íslenskra og erlendra fyrirtækja.
Hildur Eiríksdóttir hefur verið ráðin til einkabankaþjónustu Kviku. Hildur hefur víðtæka reynslu innan eignastýringar og einkabankaþjónustu og kemur til Kviku frá Nordea Bank í Lúxemburg. Hildur starfaði sem viðskiptastjóri í einkabankaþjónustu Nordea frá ársbyrjun 2013. Áður starfaði Hildur um árabil hjá Íslandsbanka í eignastýringu og einkabankaþjónustu og síðar Íslandsbanka í Luxemburg. Árið 2006 hóf Hildur störf hjá Kaupþingi í Lúxemburg og starfaði þar sem viðskiptastjóri í einkabankaþjónustu til ársins 2010. Þá var Hildur ein af stofnendum Greenleaf Financial Luxembourg og tók hún virkan þátt í að koma félaginu á laggirnar og byggja það upp fram til ársins 2012 þegar félagið var selt.
Eignastýring er burðarás Kviku og þar starfar bankinn á breiðum grunni. Eftir markvissa uppbyggingu síðustu ára veitir eignastýring Kviku alhliða þjónustu á innlendum og erlendum fjármálamörkuðum. Kvika hefur haslað sér völl á sviði sérhæfðra fjárfestinga meðal annars með fasteignaverkefnum og stefnir nú á að byggja þessa starfsemi upp enn frekar með það að markmiði að geta boðið viðskiptavinum bankans upp á fjölbreyttari fjárfestingarkosti.