Kvika hefur undirritað samstarfssamning við alþjóðlega
eignastýringarfyrirtækið Wellington Management um sölu og dreifingu á hlutabréfasjóðnum
Global Quality Growth. Sjóðurinn fjárfestir í hlutabréfum á öllum helstu
mörkuðum heims með langtíma árangur að leiðarljósi og áherslu á jafnvægi milli
vaxtar, arðsemi og gæðaviðmiða.
Wellington Management á rætur að rekja til ársins 1928
og býður upp á stýringu á skráðum verðbréfum á öllum helstu mörkuðum, í gegnum
sjóði og sérgreind söfn. Fyrirtækið er
með 969 milljarða dollara í eignastýringu og þjónustar viðskiptavini í yfir 55
löndum.
Global Quality Growth sjóður Wellington bætist nú við
fjölbreytt úrval skuldabréfa- og hlutabréfasjóða sem viðskiptavinir Kviku hafa
aðgang að á heimsvísu. Eignastýring Kviku er burðarás bankans og þar starfar
bankinn á breiðum grunni og veitir sparifjáreigendum alhliða fjármálaþjónustu á
innlendum og erlendum mörkuðum. Kvika var nýlega valin fremsta
eignastýringarþjónusta á Íslandi þriðja árið í röð af breska fjármálatímaritinu
World Finance. Við valið var meðal
annars horft til árangurs, vaxtar, vöruþróunar, viðhorfs til áhættu og
samfélagslegrar ábyrgðar.
Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri eignastýringar
Kviku:
„Þrátt fyrir fjármagnshöft síðustu ára, höfum við hjá
Kviku fjárfest í þekkingu á erlendum mörkuðum með góðum árangri. Erlendar
eignir í stýringu hafa aukist verulega og stöðugt fleiri viðskiptavinir nýta
sér þjónustuna. Það er því ánægjulegt að bæta Global Quality Growth sjóð
Wellington við fjölbreytt vöruúrval bankans. Sjóðurinn hefur náð gríðargóðum
árangri á undanförnum árum og Wellington Management er öflugur og traustur
samstarfaðili.“
---
Frekari upplýsingar um
Wellington Management má finna á heimasíðu félagsins https://www.wellington.com/en