Ármann Þorvaldsson hefur verið ráðinn forstjóri
Kviku banka hf. og Marinó Örn Tryggvason aðstoðarforstjóri bankans.
Ármann hefur starfað hjá Virðingu frá árinu
2015, síðast sem framkvæmdastjóri fyrirtækjaráðgjafar. Áður var hann
framkvæmdastjóri fyrirtækjaráðgjafar Kaupþings frá 1997 til 2005 og
framkvæmdastjóri Kaupþings Singer & Friedlander í Bretlandi frá 2005 til ársins
2008. Áður en Ármann hóf störf hjá Virðingu starfaði hann sem
framkvæmdastjóri hjá fasteignalánafélaginu Ortus Secured Finance í London.
Ármann útskrifaðist með MBA gráðu frá Boston University árið 1994 og er með BA
gráðu í sagnfræði frá Háskóla Íslands.
Marinó hefur starfað hjá eignastýringu Arion
banka og forvera bankans frá árinu 2002, síðast sem aðstoðarframkvæmdastjóri
eignastýringar frá 2014. Marinó sat í stjórn Varðar Trygginga frá 2016 til 2017.
Marinó er með BSc í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands og hefur lokið prófi í
verðbréfaviðskiptum.
Ármann tekur til starfa hjá Kviku 15. júní
næstkomandi og Marinó 1. ágúst. Magnús Ingi Einarsson framkvæmdastjóri
fjármála- og rekstrarsviðs Kviku verður staðgengill forstjóra þar til Ármann
kemur til starfa.
Magnús hefur starfað hjá Kviku og forverum
bankans frá árinu 2006 er hann hóf störf í áhættustýringu. Fram til loka árs
2014 gegndi hann stöðu forstöðumanns útlánaáhættu, áhættustýringar og
fjárstýringar. Frá þeim tíma hefur hann
starfað sem framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs. Magnús er með BSc í
vélaverkfræði frá Háskóla Íslands og MSc gráðu í vélaverkfræði frá Virginia
Tech í Bandaríkjunum.