27. júní 2018

Kvika gefur út sex mánaða víxla

Kvika banki hf. hefur gefið út sex mánaða víxla að fjárhæð 1.600 milljónir króna. Um er að ræða útgáfu í víxlaflokknum KVB 18 1220 og er heildarheimild flokksins 2.000 m.kr. Fjármálaeftirlitið staðfesti lýsingu vegna umsóknar um töku víxlanna til viðskipta þann 27. júní 2018, og sótt hefur verið um töku víxlanna til viðskipta í Kauphöll Íslands.

Útprentuð eintök lýsingarinnar má nálgast í 12 mánuði frá staðfestingu hennar í höfuðstöðvum Kviku, Borgartúni 25, 105 Reykjavík.

Rafræn eintök má nálgast hér

Til baka