03. október 2018

Kvika fer fyrir hópi fjárfesta sem fjárfestir í heilbrigðisþjónustufyrirtæki íBretlandi

Kvika hefur nýlokið við fjárfestingaverkefni í Bretlandi þar sem það leiddi hóp innlendra og erlendra fjárfesta í kaupum á meirihluta í breska heilbrigðisþjónstufyrirtækinu Cornerstone Healthcare. Fyrirtækið starfrækir tvö hjúkrunarheimili í suður Englandi og sérhæfir sig í þjónustu við aðila sem þjást af heilahrörnunarsjúkdómum.

Kaupin eru gerð í nánu samstarfi við samstarfsaðila Kviku í Bretlandi og námu þau rúmlega 20 milljónum sterlingspunda, sem eru jafnvirði rúmlega 3ja milljarða króna. Reynslumikið teymi stjórnenda hefur verið ráðið til að stýra daglegum rekstri félagsins.

Cornerstone Healthcare var stofnað árið 1990 af Sargent fjölskyldunni sem hefur rekið heimilin tvö frá upphafi. Hjúkrunarheimilin South Africa Lodge, sem er staðsett nálægt Portsmouth, og Kitnocks House í Southampton, hafa rúmlega 150 sjúkrarúm til ráðstöfunar. Fjölskyldan hefur nú selt heimilin til fjárfestahópsins sem áformar að stækka félagið með kaupum á frekari hjúkrunarheimilum á komandi árum.

Haft er eft­ir Gunn­ari Sig­urðssyni, fram­kvæmda­stjóra Kviku í Bretlandi, að fjár­fest­ing­in sé í sam­ræmi við stefnu Kviku um að finna og bjóða viðskipta­vin­um Kviku upp á áhuga­verða fjár­fest­inga­kosti í Bretlandi.

"Cornerstone er vel rekið félag og við sjáum það sem góða undirstöðu fyrir þá viðskiptaáætlun sem fjárfestarnir hafa útbúið í samvinnu við sterkt teymi stjórnenda sem nú hefur tekið við rekstri félagsins. Í Bretlandi er mikill skortur á framboði á sérhæfðri þjónustu fyrir fólk sem þjáist af heilahrörnunarsjúkdómum miðað við þá eftirspurn sem til staðar er. Þannig er mikið tækifæri fyrir okkar hóp fjárfesta að auka þjónustuna sem félagið veitir með frekari fjárfestingu í nýjum hjúkrunarrýmum".

Til baka