03. desember 2018

Kvika stækkar fjármögnun fyrir OSF II í Bretlandi

Kvika og dótturfélag Kviku í Bretlandi hafa lokið 12,5 milljóna punda stækkun á fjármögnun fyrir breska fjárfestingafélagið OSF II. Heildarfjármögnun félagsins nemur nú um 30 milljónum punda eða sem nemur tæpum 5 milljörðum króna. Alls eru fjárfestar í OSF II nú rúmlega 90 talsins og samanstanda af íslenskum lífeyrissjóðum, fjármálafyrirtækjum og fjölda annarra innlendra og erlendra fjárfesta.

OSF II fjárfestir í fasteignatengdum brúarlánum í Bretlandi og Norður Írlandi, en sá markaður hefur verið í örum vexti á undanförnum árum og nemur í dag yfir 5 milljörðum punda. OSF II er rekið í samstarfi við reynslumikið teymi hjá breska fasteignalánafélaginu Ortus Secured Finance, sem stofnað var árið 2012.

Gunnar Sigurðsson, framkvæmdastjóri Kviku í Bretlandi, segir:

Starfsemi OSF II hefur gengið vel frá því að félagið var stofnað í ársbyrjun 2018 og ávöxtun fjárfesta hefur verið í takti við væntingar. Stækkun fjármögnunar félagsins nú er í beinu framhaldi af þessum góða árangri. Margir af núverandi fjárfestum tóku þátt í stækkuninni en einnig er fjöldi nýrra fjárfesta að koma að verkefninu í fyrsta sinn, sem staðfestir enn frekar mikinn áhuga viðskiptavina okkar fyrir áhugaverðum fjárfestingatækifærum í Bretlandi. Uppbygging starfsemi Kviku í Bretlandi hefur gengið vel og verkefnastaðan er sterk. Við erum því bjartsýn á að vera í góðri stöðu til að halda áfram að bjóða viðskiptavinum Kviku upp á áhugaverða fjárfestingakosti í Bretlandi á komandi misserum.

Til baka