28. janúar 2019

Þórdís Anna Oddsdóttir til liðs við Kviku

Þórdís Anna Oddsdóttir hefur verið ráðin inn í fyrirtækjaráðgjöf Kviku banka og mun hefja þar störf á næstu vikum.

Síðastliðin 6 ár hefur Þórdís starfað hjá Icelandair þar sem hún hefur gegnt ýmsum stjórnendastöðum, síðast sem forstöðumaður tekjustýringar. Fyrir það starfaði Þórdís við rannsóknar- og ráðgjafastörf hjá Statoil A/S í Danmörku og sinnti einnig rannsóknarvinnu og kennslu í rekstrarverkfræði hjá Denmark Techniske Universitet.  Á árunum 2007–2009 starfaði Þórdís sem sérfræðingur í áhættustýringu hjá Straumi Fjárfestingarbanka.Þórdís situr í dag í stjórn Bresk-íslenska Viðskiptaráðsins og er aðjúnkt við Iðnaðarverkfræðideild Háskóla Íslands.

Þórdís er með BS gráðu í Vélaverkfræði frá Háskóla Íslands og MS gráðu frá Georgia Institute of Technology í Bandaríkjunum.  Auk þess hefur hún lokið prófi í verðbréfaviðskiptum.

Til baka