Ef þig grunar að þú sért að lenda í svikum eða sérð óeðlilegar færslur hvetjum við þig til að hafa samband við okkur á aur@aur.is eða í síma 519-8070 eins fljótt og auðið er.
Í Aur appinu getur þú framkvæmt neyðarlokun á kortinu þínu sem gerir það að verkum að ekki er hægt að framkvæma neinar færslur, hvort sem það er í posa, á netinu eða í hraðbanka. Einnig getur þú haft samband við neyðarsíma Aur, sem er opinn utan almenns afgreiðslutíma, í síma 540-4240 til þess að láta loka kortinu.
