Kristrún
Mjöll Frostadóttir hefur verið ráðin aðalhagfræðingur Kviku banka og mun hún
hefja störf um miðjan janúar næstkomandi. Um er að ræða nýtt starf sem miðar að
því að efla efnahagsgreiningu innan Kviku og styrkja þjónustu við
viðskiptavini. Aðalhagfræðingur mun jafnframt vera talsmaður bankans vegna mála
sem snúa að fjármálamarkaði og efnahagsmálum.
Síðastliðið
ár hefur Kristrún starfað sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Íslands og tekið þátt
í að móta málefnastarf ráðsins, en þangað kom hún frá bandaríska
fjárfestingarbankanum Morgan Stanley. Þar vann hún sem sérfræðingur í
greiningardeild, fyrst í New York og síðan í London. Sérsvið Kristrúnar í
London sneri að greiningu á evrópskum netverslunarfyrirtækjum. Í New York
sinnti hún greiningarvinnu í tengslum við bandarísk eignastýringar- og
orkufyrirtæki.
Þá hefur
Kristrún starfað meðal annars sem hagfræðingur í greiningardeild Arion banka og
sem blaðamaður á Viðskiptablaðinu. Hún gegnir formennsku í verðlagsnefnd búvara
hjá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, og hefur áður starfað sem
hagfræðingur í starfshóp á vegum forsætisráðuneytisins.
Kristrún er
með meistaragráðu í alþjóðafræðum frá Yale-háskóla í Bandaríkjunum, með áherslu
á hagstjórn og alþjóðafjármál, og meistaragráðu í hagfræði frá Boston-háskóla.
Þá er hún með BS-próf í hagfræði frá Háskóla Íslands.